Dagurinn í dag átti að vera góður. Dagurinn í dag átti að vera lærdómsdagur og undirbúningsdagur. Dagurinn í dag varð ekki eins og hann átti að vera. Dagurinn byrjað með því að ég vaknaði hálftíma seinna en ég ætlaði mér, ég borðaði morgunmat. Ég var spennt. Ég var spennt því ég átti að fara yfir í Tal í dag.
Kl var 12 þegar Joey hringir í mig, ég rétt missti af símanum en hringdi í hana strax tilbaka. Hún var að tékka á mér og hvenær ég myndi koma að sækja hana því við vorum að fara í lokastærðfræðitímann í dag. Ég segi henni hvenær ég ætla að koma og legg svo á. Ég tek mig til og er í góðum fíling. Leist bara ágætlega á dagsplönin. Er að stíga út úr húsinu þegar heimasíminn hringir og það er Joey að segja mér að ég sé farin yfir í Tal því hún gat ekki hringt í mig. Ég tek því talkortið mitt og spengist út í bíl. Þegar við komum í skólann tek ég upp kortið mitt og byrja að mixast í þessu. Allt virkar. Eða???? Því eftir tímann spyr Joey mig af hverju ég væri ekki búin að skipta um kort því hún gat enn ekki hringt í mig og ég, megahissa, segist vera löngubúin að því. Hún reynir því aftur að hringja í mig en ekki virkar það. Við förum því í Tal og látum áhyggjur okkar í ljós að hún geti ekki hringt í mig, enda er það algjörlega óásættanlegt. Þá kemur það í ljós að strákarnir tveir við borðið geta báðir hringt í mig og þeir sem eru í símanum og þeir sem eru í vodafone EN þeir sem eru í nova geta bara sleppt þessu því hjá þeim kemur að númerið mitt sé ekki til. Strákarnir báðir voða hissa yfir þessu og Joey lætur Helgu og fleiri sem eru hjá nova reyna að hringja en aldrei virkar það. Jæja þeir henda inn einhverri verkbeiðni og ég þarf núna að bíða og sjá hvað gerist.
Eftir allt þetta vesen er ég orðin megasvöng og ákveð því að fara í bakarameistarann með Joey og kaupa mér góðerí til að snæða á meðan ég les yfir markó. Ég kaupi mér nammisneið, kjallabollu, rúnstykki með osti, skinkusalat og appelsínusvala. Þegar ég er loksins komin heim og tilbúin með nýjasta Friday night lights þáttinn set ég mig í stellingar og ákveð að byrja á nammisneiðinni. Nammisneiðin var hörð, en ég át hana samt. Spenntari en lífið tek ég skinkusalatið upp úr pokanum og æli næstum því að hneyklsi þegar ég sé að það varð útrunnið í dag. Ekki sátt hendist ég inní eldhús, næ í smjör og ost og fer aftur inní herbergi. Tilbúin með beittan hníf tek ég kjallarabolluna upp úr pokanum og sker hana í tvennt.. bara til að sjá að hún er hol að innan. HOL !! Jæja í ofur pirringskasti tek ég kjallarabolluskurninn og smyr hann og borða. Hann var ekki góður. Rúnstykkið með ostinum oná var ágætt en ég gat engan veginn notið þess að borða það eftir því sem á undan hafði gengið.
Bakarameistarinn fær ekki mín góðu viðskipti á meðan ég er í þessari fílu. Kannski eftir nokkrar umferðir á laginu "Hugurinn fer hærra". Þá mun ég kannski geta fyrirgefið þetta.
Ég við byrja á því að biðjast afsökunar á bloggleysi mínu, hef fengið fjöldann allan af aðdáendabréfum á mailið videlskumevu@eva.is og þakka ykkur kærlega fyrir stuðninginn.. hann er mér mikils virði.
Ég er búin að eiga mjög ánægjulegar tvær helgar og þær hafa snúist um kósýkveld, nammisukk og gleði. Á föstudeginum hittumst við Magga og Joey heima hjá Joey til að læra fjárhagsbókhald og gekk það bara alveg ágætlega ;) Mikið gert grín af þeim sem lesa hægt og maniac leikur tekinn með tilþrifum ! Á laugardeginum hiittumst við svo nokkrar úr pigeklub á American Style, ég, Jóa og Magga rúlluðum í burger á meðan Marta nokkur ákvað að kjúklingasalat væri lífið. Allar vorum við mjög ánægðar með matinn okkar.. nema Marta sem tjáði sig um það að salatið sitt væri þurrt.. SVEKK ! Það er sko ekki ameríski stíllinn að fá sér salat.. nema þú sért 40kg og pósar fyrir Mode Magazine ;) Ameríkanar eru ekki svona feitir af því að þeir spengjast allir í salöt.. neiii neii.. þeir eru feitir því þeir ELSKA fitugan mat.. og hversu gott er það að sleppa stundum af sér beislinu og sökkva andlitinu í unaðsborgara ! En eftir borgarann fékk ég loksins að vera shotgun í bílnum hennar Jóu og vááá hvað það er ljúft líf... Magga þú ert komin með samkeppni ;) Ferðinni var heitið heim til Jóu í vídjógláp og varð Bring it on (mynd nr 1 btw) fyrir valinu. Oftar en ekki heyrðist frá einni okkar eða öllum "aaah", "ooooooh" yfir kjánalegheitum myndarinnar en alltaf gaman að horfa á mynd þar sem maður þarf ekki að hugsa neitt yfir því maður kann hana utan að.
Takk fyrir gott kveld ljúfur
Vikan sem var að líða einkenndist af stærðfræðiverkefni þar sem markgildi var tekið í hnotskurn og krufið í drasl. Eitt mesta ógéð sem ég veit um. Kíkti til pabba og Höbbu á miðvikudeginum og knúsaði litla bróður í bak og fyrir. Datt inní raunveruleikaþætti sem heita Moment of Truth og hversu SLÆMIR eru þeir ! Hvað er fólk að láta hafa sig útí !! "treystiru kærastanum þínum?" - nei "helduru að kærastinn sé að halda framhjá þér?" - já "finnst þér pabbi þinn góð fyrirmynd?" - nei "hver var betri elskhugi, fyrrverandi kærastinn þinn eða eiginmaður þinn?" -uuuuh. Algjört kjaftæði sko.. en samt sat ég eins og límd við skjáinn og var alltaf jafn hissa yfir þessu.
Þessi helgi er búin að vera mjög góð, Helga ljúfust mín kom í gær og við og Diddi bróðir áttum mjög gott kósýkveld. Horfðum á Crossroads á upptöku frá því árið 2003 eða 2004 og hún var orðin ansi slitin. Einhver skrítin stilling líka á sjónvarpinu mínu þannig að allir voru appelsínugulir.. en það var bara kúl :P Vaknaði svo í morgun og hjálpaði Vigga að kaupa inn fyrir innflutningsboðið sitt.. speedy gonzales var tekinn á þetta í Bónus og aldrei hef ég séð manneskju spengjast svona hratt um. Eftir þetta fór ég uppí HR að gera rekstrarhagfræðiverkefni með Möggu Lilju, Ragnhildi og Hildó vinkonu :) Það gekk alveg ágætlega þangað til Heiður kom og ákvað að fræða okkur um poliamor og vááá hvað mér fannst það fyndið dæmi. Kann eiginlega ekki að útskýra þetta þannig að þið googlið þetta bara ef þið eruð forvitin. Fyndnast fannst mér samt hvað Heiður var mikill pró þegar hún talaði um þetta haha.
Í kveld kom Signý svo til mín og við horfðum á The Mummy Returns.. ég er búin að sjá hana svona án gríns yfir 10 sinnum og kann hana mjög vel.. Signý var hins vegar að horfa á hana í fyrsta skiptið og fannst hún ekkert nema hallærisleg og var algjerlega forviða á því að það sé komin 3ðja myndin. Mér eiginlega líka og ég er ekki á því að sjá myndina þar sem það leikur ekki sama kona í þeirri mynd og fyrstu tveimur.. eitthvað Guiding Syndrom í gangi held ég.
Núna þrái ég hins vegar svefn og ætla að spólast í rúmið. Næsta blogg verður djammblogg þar sem það er mega góð helgi framundan ;)
Quote dagsins: "Við þurfum ekki póstlista, erum ekki með svona fólk hér!" -skrifstofugellan
HULDA: fór í heimsókn til uppáhalds æskuvinkonu minnar í storminum IKE og fór og sjá æskustöðvar mínar Hjónagarðana þar sem hún býr nú ásamt unnusta sínum og dóttur. Át hjá henni bláan doritos og horfðum á lokaþætti design star og high school reunion. Takk kærlega fyrir mig Hulda mín :*
Jæja elsku ættingjar og vinir, hin heimtufreka frænka mín Ítta skipaði mér að blogga og ef ég myndi ekki gera það um helgina myndi hún þurfa að beita óvingjarnlegum hefðum í að fá mig til að gera það. Ég tek þessu sem einskæru hrósi á það að ég blogga vel. Ég hef ekki bloggað síðan í júní og það er mjög góð útskýring á því. Í fyrsta lagi var ég í netsambandi úti í Noregi.. en nennti ekki að blogga.. og í öðru lagi var ég að fá nýja geðveika tölvu sem vinnur vel og hratt.. en ég nennti ekki að blogga :P
En svo ég segi nú aðeins frá því sem hefur á daga mína drifið frá því ég steig á íslenska jörð, þá hefur margt gerst.
keypti mér nýjan bíl og tölvu
fór í bíó með mömmu, helenu og sólveigu
átti unaðs verzlunarmannahelgi með möggu, signýju og joey
fór drukkin í bíó á mamma mia (skipti nr 2)
var smá þunn
jóa átti afmæli og það var hreinn unaður
gay pride
gay ballið á nasa.. palli er bestur
hitti begga og pekas (eða hvernig sem maður skrifar þetta)
tók mynd af mér með þeim
stofnaði hópinn nasa-queue-crew með international félögum mínum
var þunn
fór í vídjó til möggu, horfðum á across the universe
fór í lost maraþon til möggu og horfðum á 7 þætti
fór með bræður mína í bíó á mamma mia (3ðja skipti)
fórum svo til pabba í cocoa puffs unað og trivial skemmtun
fór til möggu í hangs
horfðum á high school musical 2... úff
fengum okkur mcdonalds... ÚFF
signý joinaði og við horfðum á 10 things I hate about you
hildur vaka er algjör dúlla
horfðum á bad boys 2... hún er löng
fór í afmæli í dag til almars og amelíu... þau er æði
fór á nýja bílnum mínum
hann er æði
hann dreif upp göngin án erfiðs
ég sakna harley
mússímúss
í kveld er svo matur á veitingarhúsi.. get ei munað hvað það heitir
og svo er GUS GUS með Röggu
og djamm
og verð örugglega þunn á morgun
Já... svona er líf mitt innihaldsríkt og skemmtilegt. Á morgun mun Helena syss svo halda upp á afmælið sitt og Þórður og Sune koma með alla dönsku familíuna inná heimilið og þau ætla að yfirtaka herbergi mitt og Didda. Ég er alveg sátt með það.. gott að hjálpa öðrum :)
Á von á Röggu eftir smá og ég enn óklædd... best að haska sér.
Í gær ákváðum við mamma, amma og Gauja frænka að skella okkur á konumynd aldarinnar, Sex and the City. Við hittumst á Hótel Sögu kl 19:15 til að bragða á unaðskokteilnum Cosmo Politan, svona aðeins til að byggja upp stemmningu.
Í þessari efnisgrein munu þið lesa spoilera þannig að ef þið hafið ekki séð myndina ráðlegg ég ykkur að lesa hana ekki.
Ég var búin að sjá trailerinn úr myndinni tvisvar og vissi því að Big myndi ekki mæta í fyrra brúðkaupið. Ég var búin að heyra mjög mismunandi dóma um myndina frá mjög mismunandi fólki og fór inná myndina með engar huge væntingar en samt ekki engar. Ég fór inn, settist niður með mentosið mitt og cosmo bragðið í munninum og beið eftir að myndin byrjaði.. voða róleg bara. Svo byrjar myndin og ég elskaði hana strax. Við hlógum allan tímann og sumar grétu mest alla myndina út af sorg, reiði, gleði og fegurð, en engin af okkur fannst hún langdregin eða of löng. Ég vissi heldur ekki hvert ég ætlaði þegar Charlotte kúkaði á sig !! En ég er mjög ánægð með gærkveldið og þessa mynd ætla ég bókað að kaupa á DVD. Mamma hefur heldur ekki séð nema nokkra þætti og er að spá í að kaupa allar seríurnar.. ég styð það heilshugar haha !! :P
En út í aðra sálma þá mun ég halda uppá afmælið mitt núna á laugardagskveldið og þemað er grímuparty. Ég er mjög spennt að sjá nokkra sem ég veit að munu mæta í búningi :P Veit líka um nokkra sem hata búninga og ég bara get ekki skilið það. Finnst svo mikil snilld að dressa sig upp í einhverja vitleysu og láta eins og hálfviti :P En það er bara ég !
Núna eru einungis 15 dagar þangað til ég fer út til Noregs í tvær vikur og ég hlakka rosalega mikið til. Fer út með æðislegan hóp og er mjög spennt yfir öllu bara. Örlögin eitthvað aðeins að grípa inní með næsta haust hjá mér og ég veit ekki hvað ég geri með það. Kemur í ljós.
En ég ætla að eyða hádegismatnum mínum í að borða :D
Ef það er til sugar-hangover þá hefur mér hlotnast sá heiður að njóta hans núna um helgina. Byrjaði allt á föstudagskveldinu þegar ég skundaði með þrjár kellingarmyndir, 6 ísblóm, pippís, bláan doritos, mix, appelsín og kók til Hildó vinkonu. Við horfðum á tvær þeirra, Dirty Dancing og Forces of Nature, átum og drukkum og höfðum það gaman.
Á laugardagsmorguninn átti ég að vera tilbúin kl hálf 12 því þá ætluðu Sóley og Stella að ná í mig í hina blessuðu Golf-ferð :D Ég vaknaði tæplega 30 sek áður en þær bönkuðu á dyrnar mínar þannig að þær þurftu að bíða smá :P En við lögðum í hann með unaðsnestið mitt og gleði. Mættum galvaskar á Golfvöllinn í 30 m/sek og skemmtum okkur þvílíkt vel. Rokið var alveg að leika við Sóleyju sem sló hvern boltann á fætur öðrum eins og Tiger ;) Ég var ansi góð í púttinu fannst mér.. hitt var ekki alveg eins og ég vildi hafa það. En ég var stolt því þetta var mitt annað skipti í Golfi og ég spilaði með rétthentum kylfum.
Takk stúlkur fyrir mig.
Um kveldið hitti ég svo Möggu og Mörtu í Nóatúni Hamraborg þar sem við versluðum í fahitasið okkar. Marta lenti í þeirri örlagaríku lífsreynslu að þurfa að borga 600 kr fyrir einn skitinn tannbursta.. vorum svo sjokkeraðar allar yfir þessu verði að við gleymdum sýrða rjómanum hjá kassanum. Eftir þetta lá leiðin í Bónusvídjó þar sem við stútfylltum pokana okkar af nammi og gummsi í 50% afslætti :P Við gerðum heiðarlega tilraun til að velja vídjóspólu.. ákváðum bara að horfa á Gone Baby Gone sem ég átti á flakkaranum mínum. Eftir mat og leik Portúgala á EM lá leiðin í vídjóið. Heilar 30 sek búnar að myndinni þegar við lítum allar á hvor aðra og hugsum "ónei, þetta er djúp mynd", og engin okkar í stuði fyrir það. Marta var líka á leiðinni á deit ;) Ég og Magga ákváðum því að láta RENT í tækið og horfa á hana í áttunda skiptið saman. Fundum nokkur atriði sem við höfðum áður misst af, sungum hástöfum með og eftir myndina skelltum við bónusdisknum í til að horfa á deleted scenes. Á meðan við horfðum á það kom Marta tilbaka eftir deitið, slúðraði aðeins í okkur *sleeeef* og ákvað að horfa á RENT með okkur. Við Magga skelltum því RENT í tækið í annað skiptið það kveld. Marta þolir ekki þegar það er sungið með eða talað yfir myndum þannig að ég og Magga urðum að þeigja. Það gekk bærilega.. ég og Magga sofnuðum báðar hahaha :D En Marta grenjaði og lifði sig inní myndina.. eins og við óskuðum eftir :P
Marta.. geim í RENT kveld bráðum? ;)
Magga, hvaða mynd er í bíó sem við getum farið á og tjattað aðeins? hahaha :D
En eftir RENT og eftir að Marta þurrkaði tárin þá ákváðum við að fara að sofa. Magga ofurbjartsýna sagði að við myndum allar komast fyrir í rúminu sínu. Eftir að hafa næstum því rúllað úr rúmminu 2var var ég alveg komin á því að fara bara í gestarúmmið, en Magga sem gat ekki andað því hún var svo klesst við vegginn varð fyrri til og skellti sér í rúmm foreldra sinna sem voru vant við látin. Fyndnast fannst mér þegar Magga skellti þessari tilllögu fram, að Marta sagði bara "okei" og breiddi svo feitt úr sér hahaha :D
Þegar við fórum að sofa var kl 5 um nóttina, sem varð þess valdandi að við sváfum til tæplega 1 daginn eftir. Allar með sugar-hangover ákváðum við að panta pizzu og reyna við Gone Baby Gone, sem var mjög góð.. en það hefði mátt vera texti á henni. Núna er kl rétt rúmlega hálf 11 og ég er alveg jafn þreytt núna og ég var þegar ég vaknaði. Rúmmið öskrar á tilveru mína ! Takk stelpur fyrir mig og sólarhringinn sem við eyddum saman ;)
Helgin byrjaði rólega hjá mér, Edda kíkti á mig í kósýkveld og kom með pizzu uppá arminn. Ég var að passa Helenu og Sólveigu á meðan mamma fékk að tjútta ;) Við stöllur byrjuðum á því að láta Lion Kind í tækið og nostalgían sem fór um mann við það áhorf var svakaleg. Um 4-5 ár síðan ég sá myndina síðast.. eitthvað minna síðan Edda sá hana því hún gat talað með ótrúlegustu atriðum ;) Ég var búin að gleyma því hvað Sasú er FYNDINN !!! ó mæ goodness sko ! En eftir Lion King var Sorority Boys að byrja á Rúv og við horfðum á hana líka. Allt í allt ógeðslega skemmtilegt kveld, takk fyrir mig Edda snickers ;)
Laugardagurinn byrjaði með því að ég svaf yfir mig, átti að taka húsið áður en ég færi í fyrstu veislu dagsins. úbbs. En þar sem að ég sótti mömmu í partyið um miðja nótt og skutlaði vinkonum hennar um alla Reykjavík og í Kópavog var það kannski ekki skrítið. Fór í sturtu á mettíma og var mætt tímanlega í Kópavogskirkju að sjá litla bróður minn skírðann. Hann var skírður Kristófer Andri :D Ekkert smá flott nafn. Veislan var svo haldin í Garðabæ og mér til mikillar ánægju kom amma Kolla með MÚFFINS !!!! Át 9 stk ásamt því að fá mér heitan og kaldan brauðrétt og tertu. Mætti því pakksödd í veisluna til Helgu DJ þar sem hún útskrifaðist úr Verzló :) innilega til hamingju með það elskan.
Eftir veisluna hennar Helgu fórum við Signý heim til hennar að gera okkur klárar fyrir 80's/Eurovision party og svona litum við út..
Helgu Höskulds fannst ég ekki eiga neitt í Signý hahaha ;) Sem er mjöög satt! Signý sló svo hrikalega í gegn í þessu partyi.. og gleraugun settu algjörlega punktinn yfir i-ið hvað varðar outfittið ! Didda var líka alveg æðisleg, Stella var eins og einhver vandræðagemsi í High School High þáttunum, Slósk var eins og ofvaxið barn og Anna Stína var bara ÓGISSLEGA TÖFF !! ;)
Stella vandræðagemsi í fögru fötunum sínum. Ég náði því aldrei hver átti þessar flíkur en ég held að það eina sem hún hafi átt voru sokkarnir haha :P
Slósk og Anna Stína í dansham ;) En þetta er bara ein mynd af nooookkrum haha
Berglind, Pálína og Didda sýna hér hvað í þeim býr. Pálína bauð okkur heim til sín í party og þar var ÓGEÐSLEGA gaman.. vá sko ! Berglind var edrúmanneskjan á svæðinu og skutlaði okkur niðrí bæ og djammaði með ;) Didda.. ég mun aldrei gleyma REX !
Jagga og Ágústa kíktu svo á okkur og rosalega gaman að fá þær :D
Þetta var bara svo hrikalega skemmtilegt kveld og margt sem gerðist :P Allar skiptum við nú um föt áður en við skunduðum niður í bæ.. og sem betur fer segi ég nú bara! Var svo heitt í gallanum. En takk allar fyrir mig og næst verður grímuparty ;)
BTW.. allir að taka frá 21. júní því þá mun ég halda uppá afmælið mitt. Er að spekúlera í grímupartyi þannig að leggið hausana ykkar í bleyti um búning. Mikið að gera núna næstu helgar og ég stefni á að reyna að djamma sem flestar helgar þar sem ég verð í stranga drykkjulandinu Noregi í allan júlí !
En ætla að halda áfram að horfa á Boston Public.. er alveg dottin í það :P
Ólýsanleg gleði sem átti sér stað um helgina og vil ég þakka pigeklubsmeðlimum kærlega fyrir mig ;) Helgin byrjaði með málsverði á Vegamótum þar sem við Magga, Signý, Marta og Jóa sátum á snæðingi. Ég rúllaði í nautapiparsteik.. MMMM ! Eftir góðan tíma við át og spjall fórum við stelpurnar svo í leikhús að sjá Ástin er diskó lífið er pönk og mikið rosalega er það leiðinlegt leikrit. Hló alveg yfir því við og við en mest allan tímann sat ég og hugsaði "óóó neeeiiii". Sá það líka ekkert allof vel þar sem ég gleymdi gleraugunum heima. Spurði Signýju 3var hvar Selma Björns væri á sviðinu. Ég veit ekki einu sinni hvernig aðalleikararnir líta út... en svona er þetta. Eftir leikritið kvaddi Magga okkur en við hinar skunduðum á Rex á tvo-fyrir-einn drykk á barnum. Rex var að hjálpa ungmennum landsins að detta í það ásamt því að berjast móti genginu. Hittum strákana á Rex, Magga, Pésa, Sölva og Áka og gleðin tók öll völd. Signý sullaði á sig, ég læsti mig inná klósti, Edda og Guðrún Þórey joinuðu gleðina og svo var haldið af stað á Nasa á Palla ball :D Þar ríkti svo mikil ölvun og skemmtun að annað eins hefur ekki sést í marga mánuði.. eða síðan Palli spilaði síðast á djammi ;) Þar hitti ég Siggu Ást mína og DANSAÐ var eins og enginn væri morgundagurinn !!! Ég týndi stelpunum um 3 leytið og svo Siggu rétt eftir það.. Þá rúllaði ég bara til Írisar og dansaði með henni til um 5 leytið þegar lappirnar ÖSKRUÐU nei !!! Þá haltraði ég út, keypti mér vöfflu með súkkulaði og rjóma og í leigubílaröðina. Var komin heim um hálf 6 og mjög ánægð með nóttina !
Vaknaði á laugardeginum hressari en allt og ekkert þunn. Fór í CISV-keilu með Noregshópnum hinum og tók svo til í húsinu með Didda þegar ég kom heim. Varð reyndar alveg þunn við það :P Magga, Signý og Helga komu svo til mín um kveldið og drukkum aðeins heima áður en við mættum í party til Bee fótboltagellu. Stemmningin þar var bara mjög góð og snitturnar ENNÞÁ betri ! Svo var brauð þar með einhverju gummsi á sem ég gat ekki hætt að snæða. Rúlluðum þar út og í partyið til Didda bróður. Ekkert smá gaman þar og djammið í hámarki. Hitti þar litlu fótboltastrákana mína. Magga greyið missti röddina í því partyi og til að forðast veikindi fyrir utanlandsferðina skundaði hún heim. Magga litla úr boltanum skutlaði henni heim og svo fórum við á Organ þar sem partyið hans Didda var, Signý og Bee og hennar förunautar ;)
ÓGEÐSLEGA GAMAN Á ORGAN !!! Vissi samt ekki að þetta væri gayball fyrr en ég kom og sá 3já menn í netabolum með trefil. Þar var mikið drukkið og djammað af sér skóna. Hitti þar Heling minn, Nönu og Heiði :D Eftir Organ fórum við á QBar og þar var ekkert smá leiðinlegt. Þvílík rugl tónlist í gangi og endalaust leiðinleg gella að vinna þar sem dyravörður. Heyrði einn í röðinni kalla hana "vörtuna" og ég hló bilað mikið að því. Ég og Diddi fórum svo þegar Q var lokað á Hlölla og svo í leigubílaröðina. Þegar við Diddi erum næst í röðinni sjáum við skó út á miðri götu, ég hleyp og næ í skóinn að beiðni Didda og Diddi tekur hann svo með sér inní leigubílinn okkar haha ! Þar tókum við einhverju ástfóstri við þennan skó og tókum ansi margar myndir af honum, okkur og honum, Didda í honum og svo framvegis ;) Leigubílstjórinn okkar var mesti perri í heimi og þegar við vorum að fara að borga þóttist hann vera útlendingur. Ég bara "gaur, ég veit þú ert Íslendingur. Þú heitir Þorsteinn.. halló ?!!!" Ekki beint pólsklegt nafn.
Á sunnudeginum vaknaði ég ekki eins hress enda bara nokkrir tímar af svefni. Fjölskylduboð fyrir Didda og við ekki beint ferskust á svæðinu. Signý kom svo til mín eftir veisluna og við lögðumst í Angel og trampó ;)
Takk allir fyrir unaðshelgina sem átti sér stað!! :D
Hvítasunnuhelgin var snilld í alla staði ! Byrjaði með því að við Magga skunduðum á What happens in Vegas með sizzling heita Ashton Kutcher... maðurinn var bara einfaldlega of heitur í þessari mynd. Eftir bíóið fórum við laugara og fattaði þá að ég hafði gleymt svarta sjal-treflinum mínum í bíóinu. Ég vona svo innilega að hann sé þar ennþá !!
Laugardagurinn byrjaði snemma hjá mér, enda fótboltaæfing kl. 10:00. Æfing góð eins og vanalega og mont-leið-23 var að taka á því eins og enginn væri morgundagurinn ! :P Um eitt leytið sótti ég svo cisv-krakkana mína og við fórum að taka myndir. Fórum í Öskjuhlíðina að rölta um í skóginum og taka myndir. Þemað okkar var "Lost" þar sem við þóttumst öll vera týnd í skóginum.. mikið gaman mikið fjör ! Eftir það fórum við í Breiðholtið í fótbolta og Slósk þjálfa reddaði okkur bolta og tók myndir af okkur í leik og gleði. Krakkarnir skemmtu sér ofurvel og léku sér vel og lengi.. ég ákvað að leggjast á hliðarlínuna hjá Slósk og hjálpa við myndatökuna. Eftir þetta fór ég heim og tók mig til fyrir afmælisdjamm lífsins hjá Möggu þar sem stelpuparty tók völdin. Ekkert smá skemmtilegt kveld og dans tekinn fram að lokum skemmtistaða ;)
Takk Eyrún fyrir farið heim ;)
Sunnudagurinn kom og ríkjandi hausverkur tók sér bólfestu í líkama mínum! Skjálfti fór um mig alla þangað til Signý kom að sækja mig til að skutla mér að bílnum mínum. Eftir það lá leiðin á Klúbbinn að horfa á Wigan - Man Und þar sem Manchestermenn unnu öruggan sigur, 2-0. Sigga Ást mín og Gummi kæróið hennar biðu mín þar og Slósk og Stella joinuðu okkur svo :) Afréttari var keyptur.. eða réttara sagt þröngvaður uppá mig. Málið er að það var einn maður að vinna á barnum og hann var sko ekki með skapið í fyrirrúmi. Ég kom til hans og spurði hvort hann ætti ekki eitthvað krassandi fyrir mig, hann bara jú ég er einmitt með tilboð: "Hamborgari með eggjum og beikoni".. ég bara TEK ÞAÐ ! enda þynnkan að skella á aftur. Svo er ég að fara að borga og hann bara, "kók eða bjór?". Ég svaraði með hæl, "hvorugt".. og hann ekki sáttur, sagði að ég yrði að velja annað hvort því tilboðið væri þannig. Ég bara, "ertu að segja mér að ég geti ekki fengið mér bara hamborgara?", hann: "kók eða bjór?".. djííí sko. Svo mátti ég ekki fá mér auka krydd á hamborgarann minn. Eftir að ég bað um auka krydd sagði hann, "vilt þú ekki bara fara inní eldhús?" Kallinn var sko ekki ánægður þennan dag !!
Um kveldið buðu Slósk og Stella mér og Signýju í ræmu.. eða vídjó á íslensku ;) Ég og Signý horfum aldrei á vídjó nema það séu amk 2 kg af nammi á boðstólnum og við fórum útí sjoppu að redda því. Löngu búnar að ákveða hvað við ætlum að fá og búnar að láta nammi í poka og búnar að bíða í röðinni í svona 5-10 mín og ekkert að gerast, þegar ólétt kona fyrir aftan okkur byrjar að kvarta og við tökum að sjálfsögðu fastlega undir kvörtunina og endum á að tala smá við hana. Veit ekki af hverju en allt í einu erum við að tala um það hvað búðin sé tómleg, konan segir þá að hún hafi verið rænd fyrir einhverju síðan og við förum þá að grínast aðeins, "og hvað, tóku ræningjarnir bara hulstrin?" Skemmtun komin í röðina hjá okkur og þá segir konan, "en hulstrin hérna eru hvort eð er alltaf í rugli því konan sem vinnur hérna er litblind OG lesblind" HAhahahaha... hversu ógeðslega fyndið er það !! Ég og Signý missum okkur af gleði þá í röðinni og ólétta konan flissar með okkur :P Kannski ekki skrítið að hún sé þess vegna svona lengi að afgreiða. Tek það fram að þarna erum við ekki ennþá farnar að hreyfast í röðinni. En við komumst loks alla leið og skellum okkur til stelpnanna í vídjóið. Finnum loks húsið eftir að hafa arkað í smá stund leitandi að vitlausu nr. ;) Báðar að deyja úr söddu eftir góðan kveldmat segjum við báðar já við frönskum ala Stellu.. étum þær og kryddum AUKA ! Setjumst svo og horfum á fyrri myndina, "The number 23". Ógeðslega góð mynd og Jim Carrey varð alveg óvart pínku sætur í þessari mynd bara ! Gerist nokkrum sinnum yfir myndinni að hann vaknar kl. 11:12 sem er samanlagt 23. Ekkert smá fríkí... nema hvað að þegar við erum búnar að horfa á myndina er kl. fokking 11:12 og ÞAÐ var fríkí !! Djí sko ! Þarna vorum við búnar að éta smá nammi með myndinni og drekka gos og ég ennþá sjúkt södd eftir kveldmatinn... þegar Stella býður okkur svo uppá ís með heeeiiitri súkkulaðisósu... MMmmmmMMM !! Ekkert smá gott sko ! Horfum á seinni myndina, "The Benchwarmers" og hún var sjúkt fyndin. Ég sofnaði reyndar yfir endanum.. man ekki alveg hvar ég hætti að geta fylgst með. Áður en við Signý fórum heim þurfti hún að koma með óskemmtilega staðreynd um heimili mitt, "Eva, Þorláksgeisli 122, 1 plús 22 eru 23!" Thanks Signý ! :P
Takk ÆÐISLEGA fyrir mergjað kveld elsku baunir !
Vaknaði óvenju seint í morgun því undirmeðvitund mín vissi hvað beið mín, taka til dagur ! Sem betur fer fékk ég heimsókn frá Slósk sem braut upp dagskrá dagsins :P Hún lét mig fá geisladisk með Brian Cristopher sem ég er búin að vera ða hlusta á síðan !! Ógeðslega flottur söngvari. Lagið hans Fire er líka alveg að kveikja elda hérna ;)
Takk fyrir heimsóknina hnáta ! :)
En núna ætla ég að testa trampó sem var að koma upp.. Signý það kallar nafn þitt ;)
Ég átti skrítið en skemmtilegt samtal við búðarstjórann hjá mér í gær (sá sem mun stjórna búðunum í noregi í sumar) um fóbíur. Þetta byrjaði allt þegar hann var að tala um leiki sem við fararstjórarnir gætum farið í og svona.. og hann minntist á blöðruleik. Upp spratt á enni mínu sviti og ég barðist við skjálftann.. því ég er með blöðrufóbíu! Hann fór að hlægja en baðst svo afsökunar á því seinna meir ;) Ég ákvað eftir hlátur hans að googla þessa fóbíu og upp kom þessi líka dramatíska fyrirsögn:
"BALLOON PHOBIA: Treatment and Hope"
Trusted, Effective Treatment for Balloon Phobia
Our board-certified team specializes in helping individuals overcome fears, phobias & anxiety of all kinds, and is particularly focused on problems such as balloon phobia. With a success rate close to 100% we offer a lifetime guarantee to our clients.
How does Balloon Phobia show up ?
The actual phobia manifests itself in different ways. Some sufferers experience it almost all the time, others just in response to direct stimuli. Everyone has their own unique formula for when and how to feel bad.
Já krakkar mínir, það er þá einhver von fyrir mig með þessari fóbíu. Annars þá er ég líka með trúðafóbíu.. þeir eru bara EKKERT krúttlegir og skemmtilegir, köngulóarfóbíu og brúarfóbíu.
Annars þá er ég búin að vera að endurskipuleggja herbergið mitt og komin með hillu undir allar ástarsögurnar mínar :D Er loksins komin með netið aftur inní herbergi eftir mánaðardvöl frammí stofu.. mömmu til mikillar ánægju ;)
Ég og Magga drógum svo Signýju með okkur á fótboltaæfingu í gær og það var ekker smá gaman. Reyndar alveg ólöglega snemmt, 10-11 um morgun. Sóley þjálfari er mikill bloggari í sér og ég hef verið að lesa það.. hún bloggaði um daginn um folf. Verð bara að segja að ég er gífurlega spennt fyrir þessu. En þetta er FRISBÍ leikur :D Það er til félag hérna á Íslandi sem sérhæfir sig í þessu, heitir Frisbígolffélag Íslands.
Pant ég sko !!
En ætla að halda áfram að taka til.. byrjaði í gærmorgun..
Miklar og heitar umræður komu upp í hinum þessum fjölskylduveislum í báðum fjölskyldum hjá mér núna fyrir 2 vikum. Málefnið snerist þá aðallega um það hvort Harley, eða Rauða Hættan, eins og sumir vilja kalla hana, væri treystandi til að keyra norður um helgina sem var að líða.
Þegar ég var í mat hjá pabba og Höbbu þá var hlegið að mér. Af einskærri góðmennsku þá létu þau orðið berast og afi og amma ásamt fleira skyldfólki að norðan byrjuðuð að hlægja með þeim.
Í afmælisboði á Skaganum var ekki vel tekið í það að ég skyldi keyra norður á bílnum og frænkur mínar tvær, ónefndar, urðu sérstaklega áhyggjufullar. Ég lét þessar áhyggjur sem vind um eyru mín þjóta og var enn staðráðnari í því að sýna þeim hvað býr í henni Harley minni.
Í þessum boðum heyrðust setningar eins og "Hættan kemst aldrei norður", "Hver átti þessa hugmynd?", "Eva ertu VISS?".
Eftir boðin og matinn og allt sem því fylgdi sagði mamma mér að afa vantaði líka far. Ég ákveð að bjóða honum far í skipti fyrir bensín ;) og það gekk eftir. En í gamla heyrðist samt þetta.. "hvenær leggjum við af stað? eigum við ekki að leggja af stað á miðvikudaginn fyrir helgi, það er aldrei að vita hvað kemur fyrir" Ég læt hann vita af því að við verðum í samfloti með mömmu, pabba og stelpunum og þau hjálpa okkur EF eitthvað skyldi gerast. Hann róast aðeins við það en meira þegar ég minnst á Guiding þátt dagsins.
Daginn fyrir brottför ákveður pabbi Hannes að leigja bara 9 manna rútu og keyra á henni norður þannig að ég þyrfti ekki að fara á mínum bíl, "Eva mín, þetta er baaara til að spara bensín"... yeah right.
Jæja, Harley beið mín bara heima í góðu standi þegar ég kom að norðan á sunnudeginum og tilbúin í tuskið. Ég, Diddi og Signý ákváðum að skella okkur í bíó á myndina Forgetting Sarah Marchall (GEÐVEIKT FYNDIN) en áður þurfti ég aðeins að skutlast með Didda og til pabba Jóa og Höbbu í hafnarfjörðinn. Eftir að ég sótti Signýju pípti í bílnum og upp spratt olíuljósið á bílnum sem hvarf jafn fljótt og það kom. Ég ákvað að redda þessu bara eftir bíóið! Þegar við stigum út úr bílnum blasti við okkur nasty lykt sem ég ákvað að redda... eeeftir bíóið :P Þegar myndin klárðist spengdumst við uppá næstu bensínstöð og ég sagði að olíuljósið hafi komið og ólýsanleg lykt hefði blossað upp. Ég fékk ungan pilt til að hjálpa mér og eftir að hafa tékkað á olíunni horfði hann á mig og sagði að það væri í fínu lagi með hana. Svo bætti hann við, "hins vegar vantar kælidropa á bílinn þinn".
Whaaaaat?
Hvað eru kælidropar spyr ég nú bara. Ég horfði á drenginn og spurði hann hvað líterinn kostaði og hann sagði 7-900 kr. Ég lét hann fylla kælidropana mína á meðan Signý og Diddi biðu þolinmóð inní bíl. Hann sagði að það þyrfti nokkra lítra og mig verkjaði smá í veskið. Hins vegar blikkaði hann mig þegar hann var búinn og sagði, "Segðu bara 1 líter". Úúúúú !! ;)
En ef mér hefði verið treyst til að keyra norður hefðum við afi ekki komist langt.. kannski á kjalarnesið. Sá gamli hefði nú látið mig heyra það þá maður !! djíí. En mikið rosalega er gott að keyra bílinn núna maður, hættur að hiksta í tíma og ótíma. Hözzlerinn á bensínstöðinni sagði mér að ég væri heppin, því ef ég hefði keyrt eitthvað lengra hefði getað brætt úr vélinni ! :/
En já.. svona er það nú :D Manchester United - Barcelona á morgun og ég er á báðum áttum með að horfa á leikinn eða fara á æfingu. Spáð geðveiku veðri á morgun, en þetta verður speeeeeennandi leikur.. sjjíí !